Framsókn og Sjálfstæðismenn vinna saman í Húnaþingi Vestra

Framsókn og aðrir framfarasinnar skrifuðu undir meirihlutasamkomulag við Sjálfstæðismenn og óháða í Húnaþingi vestra í gærkvöldi. Undirritun málefnasamnings fór fram á Borðeyri.N-listinn, Nýtt afl, er stærsti flokkur Húnaþings vestra en hann fær ekki að taka þátt í meirihlutanum. N-listinn fékk 37,8% atkvæða í kosningunum 16. maí og þrjá fulltrúa kjörna. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fengu tvo fulltrúa hvor og mynda saman meirihluta næstu fjögur árin.Örn Arnarson, oddviti Sjálfstæðismanna, verður formaður byggðarráðs og Sigurður Líndal Þórisson, oddviti Framsóknar, verður forseti sveitarstjórnar.Oddvitar D og B lista. Örn Arnarsson og Sigurður Líndal handsala meirihlutasamkomulag á BorðeyriFaecbook / Facebook
Framsókn og Sjálfstæðismenn vinna saman í Húnaþingi Vestra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd