Allt framhaldsskólanám á einum stað

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem í fyrsta sinn eru birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Viðurkenndar námsbrautir sem nú eru birtar á vefnum eru um 400 í 37 skólum. Markmið vefsins framhaldsskolanam.is er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavænu viðmóti og birtingin liður í aðgerðum stjórnvalda til að bæta yfirsýn yfir menntakerfið og auka stafræna þjónustu, að því er segir í tilkynningu.Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ.RÚV / Ragnar Visage
Allt framhaldsskólanám á einum stað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd