Model NATO-ráðstefna fyrir ungt fólk verður haldin á Alþingi í haust. Á ráðstefnunni taka þátttakendur að sér hlutverk fulltrúa aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og bregðast við sviðsettu alþjóðlegu neyðarástandi.Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að ráðstefnan 2. október sé ætluð ungu fólki á aldrinum 18 til 35 ára sem hefur áhuga á alþjóðamálum, stjórnmálum, lögfræði, heimspeki, löggæslu, varnarmálum eða opinberri þjónustu.Ráðstefnan er skipulögð af utanríkisráðuneytinu í samstarfi við breska sendiráðið í Reykjavík, Alþingi, YATA Ísland og Varðberg, og Háskólinn í Birmingham sér um fundarstjórn.„Markmiðið er að veita þátttakendum innsýn í ákvarðanatöku innan Atlantshafsbandalagsins og hvernig aðildarríki þurfa að samræma ólíka hagsmuni, sjónarmið og áherslur þegar alþjóðlegt örygg