Nicusor Dan Rúmeníuforseti greindi frá því að dróninn sem flaug inn í lofthelgi landsins á föstudaginn er rússneskur af gerðinni Geran-2, samkvæmt niðurstöðum skýrslu rannsóknarhóps þarlendra sérfræðinga.Allar áletranir á flygildinu voru með kyrillísku letri ásamt því að rafbúnaður og stjórnkerfi er sams konar og í Goran-2 drónum, að sögn forsetans. Hann segir engum öðrum en Rússum um að kenna að dróninn fór inn fyrir lofthelgina, olli tjóni og meiðslum á fólki.Dróninn flaug inn fyrir rúmenska lofthelgi meðan Rússlandsher gerði stórfellda árás á Úkraínu.Eldur kom upp og tvennt meiddist lítillega eftir að hann skall á þaki fjölbýlishúss í hafnarborginni Galati, nærri landamærunum að Úkraínu. Leiðtogar Evrópuríkja brugðust ókvæða við.Rússar þvertaka fyrir að dróninn tilheyri þeim og þjóðarör