Tveir erlendir leiðsögumenn voru handteknir um helgina og vísað brott frá Færeyjum ásamt því að vera gert að greiða sekt fyrir að starfa þar án tilskilinna leyfa.Frá Sandey í Færeyjum. Ferðamennska hefur færst talsvert í vöxt á síðustu árum.Vefur / KringvarpiðMönnunum verður ekki leyft að koma aftur til Færeyja um ótiltekinn tíma. Hið sama gerðist fyrir tveimur vikum, samkvæmt umfjöllun færeyskra fréttamiðla.Lögreglan í Þórshöfn hafi í nægu að snúast þar sem henni berist á annan tug tilkynninga daglega frá áhyggjufullum almenningi vegna starfa erlendra leiðsögumanna. Vefritið Portalsegir lögregluna hafa í liðinni viku rannsakað minnst þrjú meint brot starfsmanna ferðaskrifstofa.