Jerome Powell, fyrrverandi bankastjóri bandaríska seðlabankans, impraði á mikilvægi þess að stjórnvöld virði sjálfstæði bankans til þess að hann haldi trúverðugleika sínum. Það gerði Powell í ræðu sem hann hélt þegar hann veitti hugrekkisviðurkenningu John F. Kennedy-stofnunarinnar viðtöku. Hann hlaut verðlaunin fyrir að hafa í störfum sínum staðið vörð um sjálfstæði bankans.„Líkt og margar aðrar stofnanir þá hefur seðlabankinn þurft að gangast undir álagspróf,“ sagði Powell. „Ef einhver ríkisstjórn finnur leið til þess að koma stjórnendum bankans frá störfum vegna ágreinings um stefnumál þá eiga ríkisstjórnir sem á eftir koma eftir að gera slíkt hið sama,“ bætti Powell við í lítt dulbúinni gagnrýni sinni í garð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og tilraunum forsetans til að reka Lisu Cook