Leiðtogar fordæma aðgangshörku Ísraela í Suður-Líbanon

Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands hvetja Ísraelsmenn til að láta af hernaðaraðgerðum í Líbanon. Þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi hefur Ísraelsher aukið enn á árásarhörku gagnvart Hezbollah-hreyfingunni í suðurhluta landsins.Fjöldi fólks hefur verið drepinn og særst í atlögum hersins sem sölsaði undir sig miðaldakastalann Beufort í Litanidal í gær. Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ekkert réttlæta þá miklu stigmögnun sem orðið hefur í Suður-Líbanon og þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl tekur í sama streng.Breski utanríkisráðherrann Yvette Cooper segir að Ísraelar verði að hætta drápum á almennum borgurum og eyðileggingu innviða sem dragi verulega úr möguleikum á friðarsamkomulagi. Hezbollah verði að láta af árásum á Ísrael og afvopnast auk þess sem stríðandi fylki
Leiðtogar fordæma aðgangshörku Ísraela í Suður-Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd