Tveir keppast um forsetaembætti Kólumbíu í seinni umferð

Tveir frambjóðendur munu keppast um forsetaembættið í Kólumbíu í seinni umferð forsetakosninga þar í landi 21. júní. Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella hlaut flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna í gær, 44%. Vinstrimaðurinn Ivan Cepeda verður mótherji hans í seinni umferðinni en hann hlaut 41% atkvæða í kosningum gærdagsins. Þar sem enginn frambjóðandi náði að tryggja sér meirihluta atkvæða þarf að kjósa aftur í seinni umferð.Kosningabaráttan hefur verið sú blóðugasta í landinu í rúman áratug. Miguel Uribe, sem var talinn sigurstranglegur frambjóðandi, lést af sárum sínum í ágúst eftir að hafa verið skotinn í höfuðið á kosningafundi. Þá hafa bílasprengjur og drónaárásir sett mark sitt á baráttuna, svo fátt eitt sé nefnt.De la Espriella hefur haldið ræður á kosningafundum bak
Tveir keppast um forsetaembætti Kólumbíu í seinni umferð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd