Stjórn útgerðarfélagsins Brims hefur samþykkt að kaupa öll hlutabréf í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Þetta kom fram í tilkynningu frá Brimi í kvöld. Kauptilboðið var samþykkt í september með fyrirvara um samþykki stjórna beggja félaga, hluthafafundar Brims og Samkeppniseftirlitsins. Tilboðið þá nam þrjátíu milljörðum en í tilkynningunni segir að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör sem meðal annars tekur tillit til vaxtaberandi skulda. Hlutur Brims nemur um sex prósentum af heildarhlutafé þess. Hluthöfum er boðið að kaupa hlutabréf í Brim að nafnvirði 70 milljónir króna að nafnvirði. Heimild aðalfundar félagsins fyrr á þessu ári takmarkast við að samanlögð kaup fari yfir tíu prósent af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og ti