Boðað til fundar í öryggisráðinu vegna aðgangshörku Ísraels í Suður-Líbanon

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað til neyðarfundar á morgun, mánudag, vegna aukinnar aðgangshörku Ísraelshers í Líbanon, að kröfu Frakka. Ísraelskar hersveitir fóru yfir hið hernaðarlega mikilvæga Litanifljót í og náðu yfirráðum yfir Beaufort-kastala eftir harða bardaga við liðsmenn Hezbollah. Hermenn drógu ísraelska fánann þar að húni í dag. Kastalinn er frá tímum krossfaranna á tólftu öld og afar mikilvægur hernaðarlega þar sem hann gnæfir yfir Litanidalnum. Hann er í um tíu kílómetra fjarlægð frá landamærum Líbanons og Ísraels og úr turnum hans sést yfir Suður-Líbanon og norðurhluta Ísraels. Að minnsta kosti átta voru drepin í árásum Ísraelshers á Suður-Líbanon í dag, þar af þrjár konur samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytis Líbanons.Nítján til viðbótar særðust, þar af nokkr
Boðað til fundar í öryggisráðinu vegna aðgangshörku Ísraels í Suður-Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd