Lést eftir stökk úr loftbelg í Hollandi

Maður lést á laugardagskvöldið eftir að hafa stokkið úr loftbelg yfir hollenska bænum Zundert.Lík mannsins hafnaði í garði í bænum, sem er þekktastur fyrir að vera fæðingarstaður listmálarans Vincents van Gogh, nærri landamærum Belgíu.Joyce Vermue, bæjarstjóri Zundert, vakti athygli á málinu á samfélagsmiðlum og staðfesti að einstaklingur hefði stokkið úr loftbelgnum með þeim afleiðingum að hann lést við lendingu.„Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að margir urðu vitni að þessu eða heyrðu af því,“ sagði bæjarstjórinn og bauð öllum þeim sem sáu fallið upp á áfallahjálp í ráðhúsi bæjarins.EPA-EFE / NARONG SANGNAK
Lést eftir stökk úr loftbelg í Hollandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd