KR vann skemmtilegan 5-3 sigur á KA í níundu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Heimamenn voru komnir í 3-0 forystu í hálfleik og virtust vera búnir að klára leikinn strax í hálfleik. En KA gafst ekki upp og gerði lokamínúturnar afar spennandi áður en KR gerði út um leikinn í uppbótatíma.