Flugfélagið Icelandair hefur aflýst 38 flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli síðustu vikur vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Af þeim voru sex ferðir felldar niður í dag, til og frá London, Glasgow og Róm.Margir voru strandaglópar í dag en ljóst er að mannekla í áhöfnum Icelandair hefur haft áhrif á ferðalög þúsunda farþega. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði sjaldgæft að aflýsa þyrfti ferðum af þessum sökum þegar fyrstu ferðirnar voru felldar niður 5. maí.Sama dag var fyrsti fundur Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara. Þó er ekki er hægt að segja með vissu hvort kjaradeilan sé bein orsök þess að ekki hafi tekist að manna áhafnir.Samkvæmt skriflegu svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu hefur 19 brottförum frá Keflavíkurfl