Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir að næstu misserin verði eldvarnir við Guðmundarlund bættar. Lundurinn slapp naumlega í miklum gróðureldum í febrúar og þar sem áður var mosi sprettur nú upp lúpína.Tugir hektara brunnu í gróðureldunum sem kviknuðu ofan við Vatnsvík við Elliðavatn og breiddust hratt út og alla leið að Guðmundarlundi í um kílómetra fjarlægð.„Við vorum það lánsöm þegar eldurinn kom að Guðmundarlundi, eldurinn sleikti svona alveg jaðarinn á Guðmundarlundi, en hann slapp. En svo aftur á móti, hinum megin, fyrir austan þar sem eldsupptökin voru nálægt Elliðarvatni, þar eru dálitlar skemmdir í gömlum sumarbústaðalöndum,“ segir Kristinn H. Þorsteinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs.Lítill göngustígur kom í veg fyrir að eldurinn næði að brenna lundinn. K