Þrír leikir í Bestu deild karla í fótbolta kláruðust rétt í þessu. KR, Stjarnan og ÍBV unnu sigra.ÍBV vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta er liðið vann 6-1 stórsigur gegn Keflavík í Vestmannaeyjum. ÍBV og FH höfðu hvorugt náð að vinna leik hingað til en Eyjamenn skilja nú FH-inga eftir eina í neðsta sæti.ÍBV er með fimm stig í 11. sæti. FH er með tvö stig í 12. sæti. Keflavík er í 7. sæti með 11 stig.Markaskorarar:Róbert Elís Hlynsson '14 1-0 - ÍBVHalldór Jón Sigurður Þórðarson '39 2-0 - ÍBVAlex Freyr Hilmarsson '49 3-0 - ÍBVMilan Tomic '52 4-0 - ÍBV4-1 Muhamed Alghoul '61 - KeflavíkRóbert Elís Hlynsson '67 5-1 - ÍBVOmar Sowe '85 6-1 - ÍBVUpplýsingar um markaskorara fengnar frá fotbolti.net KR TAPAÐI NÆRRI ÞVÍ NIÐUR UNNUM LEIK Í Vesturbænum vann KR 5-3 sigur gegn KA í