Kveður Pulsuvagninn þakklátur eftir 46 ár og gerist bóndi

Það er komið að kaflaskilum hjá Vilbergi Skúlasyni, þekktur er sem Villi pulsa í Reykjanesbæ, en hann er að selja Pulsuvagninn sinn eftir 46 ár. Hann kvaddi með því að bjóða upp á pylsur í sól og blíðu í bænum í dag. „Ég keypti gamlan pulsuskúr af strákum sem voru hérna. Og utan á honum stóð pulsuvagninn með U-i sem ég hef bara leyft að standa, síðan þá hefur þetta verið að núa manni stundum að þetta sé ekki svona, en það biðja allir um pulsu,“ segir Villi. „HREINLÆTI OG GOTT HRÁEFNI, ALLTAF OPIÐ OG AÐ ALLT SÉ TIL“ Reyndar bað fréttamaður Villa um pylsu en ekki pulsu, enda að norðan. En það sló Villa ekki út af laginu. Hann segir sama fólkið hafa komið allan þennan tíma. Lykillinn að því sé hreinlæti og gott hráefni. Að hafa alltaf opið og að allt sé til.Gunnlaugur Kárason, sem verður n
Kveður Pulsuvagninn þakklátur eftir 46 ár og gerist bóndi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd