Verktakar hafa reist sér hurðarás um öxl

Vaxtakostnaður verktaka vegna nýbyggðra íbúða sem seljast ekki á höfuðborgarsvæðinu nemur um 60 milljónum á dag eða um 20 milljörðum á ári að mati fasteignasala. Um 1.700 nýjar íbúðir eru óseldar á höfuðborgarsvæðinu.Ef þessi þróun heldur áfram gæti hún leitt til þess að uppbygging stöðvist, sem aftur gæti skapað enn meiri húsnæðisskort og verðhækkanir á næstu árum. ALDREI FLEIRI ÍBÚÐIR TIL SÖLU Salan það sem af er þessu ári er um 10% minni en í fyrra. Illa gengur að selja nýjar íbúðir. Framboð íbúða til sölu jókst talsvert á fyrsta ársfjórðungi ársins 2026. Alls voru 3.048 nýjar íbúðir auglýstar til sölu á ársfjórðungnum og hafa þær aldrei verið fleiri á því tímabili. Til samanburðar var 2.161 ný íbúð auglýst til sölu á fyrsta ársfjórðungi 2025 og hefur þeim fjölgað um rúmlega 40% á mi
Verktakar hafa reist sér hurðarás um öxl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd