Refum á Íslandi hefur fækkað um 40% frá árinu 2011 samkvæmt nýju stofnmati Náttúrufræðistofnunar. Áætlað er að refastofninn hafi talið 7.800 dýr árið 2011 en 4.700 vorið 2024.Ester Rut Unnsteinsdóttir vann matið fyrir hönd Náttúrufræðistofnunar Íslands. Hún segir að þróunin kalli ekki á sérstakar aðgerðir. Vel sé fylgst með veiðum.„Þessi staða myndi setja hann á stað sem kallast vulnerable eða í nokkurri hættu, ekki í útrýmingarhættu eða neitt svoleiðis. Þetta er vernduð tegund samkvæmt lögum þannig að auðvitað þarf að fylgjast með en þetta er aðallega ástæða til að vera vakandi og þá kannski kalla eftir meiri upplýsingum um veiðarnar,“ segir Ester.Niðurstöðurnar verða kynntar á málþingi um íslenska refinn 9. júní í Eddu, húsi íslenskunnar, klukkan 13.