Lögreglustöð eitt barst tilkynning um líkamsárás og eignaspjöll á veitingastað í miðborginni í dag en gerandinn var farinn af vettvangi er lögreglu bar að garði. Þá sinnti lögreglustöð þrjú, sem fær tilkynningar um mál í Kópavogi og Breiðholti, útkalli þar sem tveir menn áttu að hafa verið að stela miklu magni þýfis úr matvöruverslun. Rannsókn stendur enn yfir í báðum málum.