Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað neyðarfund á morgun um aukinn hernaðarþunga Ísraela í Líbanon. Ísraelsher hefur ruðst enn lengra inn í Líbanon sunnanvert og tók í dag yfir sögufrægan kastala. Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels sagði í yfirlýsingu í dag að aðgerðin markaði breytta stefnu og nýtt stig hernaðar Ísraela í Líbanon.Beaufort-kastalinn í sunnanverðu Líbanon var reistur fyrir um 900 árum. Ísraelar hafa áður tekið hann yfir, í fyrra stríði milli ríkjanna fyrir rúmlega fjórum áratugum.Benjamín Netanyaju forsætisráðherra Ísraels sagði í yfirlýsingu í dag að aðgerðin markaði breytta stefnu og nýtt stig hernaðar Ísraela í Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld hafa sakað Hezbollah-samtökin í Líbanon um að brjóta skilmála vopnahlés sem Ísraelar og Líbanir sömdu um.Líbönsk stjórn