Enn er á huldu hvað olli háværum hvelli í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum á fimmtudag. Vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA segja vígahnött hafa valdið svipuðu atviki í Massachusetts og New Hampshire aðfaranótt laugardags en orsök hávaðans í Suður-Karólínu er ráðgáta enn sem komið er.Íbúum var vel brugðið því hljóðið líktist sprengingu eða kraftmikilli þrumu. Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um að gjöreyðingarvopni hafi verið skotið yfir Bandaríkin eða að geimverur hafi verið í könnunarleiðangri fyrir mögulega innrás.Íbúum víða í Suður-Karólínu var brugðið þegar hávær hvellur glumdi á fimmtudag. Jarðvísindamenn telja mögulegt að þarna hafi eitthvað rofið hljóðmúrinn og getgátur um gjöreyðingarvopn og geimverur geysast um samfélagsmiðla.NASA sagði ekkert benda til