Milljónir brjóstakrabbameinssjúklinga á heimsvísu gætu sloppið við hefðbundna krabbameinslyfjameðferð. Þetta gefa niðurstöður nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar til kynna.Teymi við Lundúnaháskóla, UCL, stóð að rannsókninni sem náði til sex landa.Yfir 4400 nýgreindir einstaklingar yfir fertugu, með svokallað hormónajákvætt brjóstakrabbamein, tóku þátt í rannsókninni. Notast var við erfðapróf sem kallast Prosigna, til að meta líkurnar á að krabbameinið tæki sig upp aftur að lokinni skurðaðgerð. LÍFSLÍKUR AUKAST LÍTIÐ MEÐ LYFJAMEÐFERÐ FYRIR ÁKVEÐINN HÓP Skurðaðgerð er vanalega sú meðferð sem notast er við gegn brjóstakrabbameini og í kjölfarið er oft notast við lyfjameðferð til að draga úr líkum á að meinið taki sig upp að nýju. Einnig þegar meinið hefur dreifst í eitla.Um tveir þriðju þáttake