Yfir hundrað keppendur tóku þátt í Mývatnsmaraþoninu í gær þrátt fyrir að hlaupaleiðin væri snævi þakin. Allir kláruðu þrátt fyrir veðrið. Hlaupið var í gegnum Dimmuborgir frá Kaffi Borgum og upp í Jarðböðin, gegnum Hraunið og undir Hverfjall.Chris Wolffsensperger var í fyrsta sæti karla í maraþoninu og í kvennaflokki var það Hildur Andrjesdóttir. Sigurvegari í Hraunhlaupinu var Sigurjón Ernir Sturluson í karlaflokki, en í kvennaflokki var það Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir.Jóhann Ottó Wathne vann hálfmaraþon karla og Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir vann hálfmaraþon í kvennaflokki. Sigurvegarar í 10 km voru Sigurjón Ernir Sturluson í karlaflokki og Anna Berglind Pálmadóttir í kvennaflokki. Dóttir hennar Helga Maren Einarsdóttir hreppti þriðja sætið.