Hlauparar frá þrjátíu og átta þjóðlöndum eru nú að koma til landsins og fara í Hveragerði til að keppa í einu stærsta utanvegahlaupi landsins, „Hengill Ultra“, en reiknað er með að um þúsund hlauparar taki þátt í hlaupinu.Hlaupið verður nú haldið í 15. sinn laugardaginn 6. júní. Heilmikill undirbúningur er fyrir hlaup, sem þetta en þar kemur heimakonan Rakel Magnúsdóttir sterkt inn en hún hefur verið kynnir á hlaupunum síðustu ár og verður engin undantekning á því núna. Reiknað er með um þúsund þátttakendum í hlaupið.„Það voru held ég 27 þjóðerni í fyrra en það er komið upp í 38 núna, þannig að þetta hlaup er farið að vekja gríðarlega mikla athygli bara um allan heim,” segir Rakel og bætir við.„Við erum náttúrulega að hlaupa á eldfjallasvæði og náttúran er náttúrulega alveg einstök hérna,