Hægriflokkurinn Venstre í Danmörku er fallinn frá hugmyndum um að Danir segi sig frá Evrópusamningnum um ríkisfang. Þess í stað eigi Danir að beita sér fyrir breytingum á því.Samkomulagið var nokkuð til umræðu í Danmörku fyrir þingkosningar í vor. Venstre – og fleiri flokkar raunar – töldu að skuldbindingin gerði Dönum erfiðara að framfylgja útlendingastefnu sinni.Meðal þess sem samkomulagið felur meðal annars í sér er að ríki svipti ekki fólk ríkisborgararétti nema það hafi framið glæpi sem gangi gróflega gegn grundvallarhagsmunum ríkisins.Nokkur umræða hefur verið um það í Danmörku að svipta glæpamenn af erlendum uppruna ríkisborgararétti. Ljóst er að ákvæði samningsins gætu bundið hendur stjórnvalda í þeim efnum.Hugmyndir um að svipta brotamenn af erlendum uppruna ríkisborgararétti hafa