Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er flutt aftur til landsins og tekur senn á ný sæti á þingi. Áslaug hefur síðasta vetur verið í leyfi frá þingmennsku og stundað nám í New York en hún útskrifaðist á dögunum.Í færslu á samfélagsmiðlum býður Áslaug stuðningsmönnum til fögnuðar í anddyri Parliament-hótelsins við Austurvöll á fimmtudag kl. 17 en tekur sérstaklega fram að það sé ekki útskriftarveisla.Facebook / Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir