Fangar og starfsfólk í fangelsinu á Hólmsheiði hafa fengið áfallahjálp á vegum Fangelsismálastofnunar í dag eftir að maður fannst látinn í fangaklefa í morgun.Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, staðfestir að maðurinn hafi svipt sig lífi.„Þetta er náttúrulega sjalfgæft, en því miður allt of algengt samt sem áður og sýnir og minnir á mikilvægi góðrar heilbrigðisþjónustu og sálfræðiþjónustu í fangelsum,“ segir Guðmundur.„Við munum hitta Fangelsismálastofnun eftir helgi til að ræða enn frekari jafningjastuðning og ráðgjöf varðandi þetta mál.“ HÆTTAN MEIRI Í FANGELSUM Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fangi tekur eigið líf í íslensku fangelsi. Það gerðist síðast á Litla Hrauni fyrir rúmlega tveimur árum.„Hættan við sjálfsvíg er töluvert meiri í fangelsiskerfinu en annars