Borgarstjórn kemur saman á fundi á þriðjudaginn og tekur fyrir tillögur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Fulltrúar meirihlutans leggja til að reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar verði felldar niður.„Það er auðvitað leiðinlegt að þarna á augljóslega að taka niður fána sem hafa verið dregnir að húni til að sýna samstöðu,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir um áformin. Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að fella niður reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar.„Lagt er til að borgarstjórn samþykki að íslenski fáninn verði dreginn að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur. Einnig er lagt til að samþykkt verði