Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar segir Friðrik Pálsson á Hótel Rangá. Hann setur hins vegar spurningarmerki við haustið.Friðrik Pálsson er eigandi og hótelstjóri Hótels Rangár í Rangárþingi eystra. Á hótelinu eru um 50 herbergi og þar af nokkrar svítur. Friðrik segir að sumarið fari vel af stað og að staða ferðaþjónustunnar sé góð að hans mati, ekki þurfi yfir neinu að kvarta.„Það sem snýr að okkur hér og ég heyri í kringum mig þá er það býsna gott. Ég held að það sé dálítill munur eftir fjárráðum fólks hvernig það er að ferðast núna, mér heyrist það, til dæmis að Bandaríkjamenn, þeir tala um að það séu bara þeir, sem séu bara vissir um að þeir eigi fyrir kreditkortinu þegar þeir koma heim, sem að leggi í að ferðast. En í það heila tekið þá lítur sumarið vel út en það eru örlítið mei