Vilja hertar reglur um frostlög sem notaður hefur verið til að drepa dýr

Dýraverndarsamband Íslands, dýraverndunarfélögin Villikettir og Dýrfinna skora á stjórnvöld að vinna að því að draga úr innflutningi og sölu á frostlegi sem inniheldur etýlenglýkól og að settar verði skýrari reglur um öryggi slíkra vara.Reglulega hefur verið eitrað fyrir dýrum víða um land með mat sem hefur verið lagður í frostlög og skilinn eftir útivið. Frostlögur getur innihaldið efni sem heitir etýlenglýkól en það gefur frostleginum sætt bragð. Dýrin vara sig ekki á hættunni og borða matinn. Þetta leiðir til kvalarfulls dauðdaga þar sem eitrið eyðileggur nýrun.Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands segir um mjög alvarlegt dýravelferðarmál að ræða.„Þetta er brot á lögum um velferð dýra. Það er gríðarlega mikilvægt að það verði brugðist við af því að þetta er svo
Vilja hertar reglur um frostlög sem notaður hefur verið til að drepa dýr

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd