Sex ferðum Icelandair aflýst – Enn langt í land í kjaradeilu

Flugfélagið Icelandair hefur aflýst sex flugferðum í dag vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Ferðirnar eru til og frá London, Glasgow og Róm. Margir eru strandaglópar í þessum borgum því vélarnar voru fullbókaðar.Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir allt kapp lagt á að bóka nýjar ferðir fyrir fólkið.Mikið hefur borið á því að flugferðum Icelandair sé aflýst vegna áhafnaskorts að undanförnu en það er almennt nokkuð sjaldgæft. Í síðustu viku var tíu flugferðum aflýst. ENGIR KJARAFUNDIR Á DAGSKRÁ Enn er langt í land í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna, sagði Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í vikunni.Hver er staðan núna?„Það hefur ekki styst mikið,“ segir Ástráður.Fundað var í liðinni viku en engir fundir eru sem stendur á dagskrá
Sex ferðum Icelandair aflýst – Enn langt í land í kjaradeilu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd