Karlmaður sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt. Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri staðfestir það við fréttastofu en segist ekki geta greint nánar frá tildrögum andláts eða nánari upplýsingum um þann sem lést. Fyrst var greint frá á RÚV.