Hver kúnni var sigur, en nú þarf að vísa fólki frá

Þrátt fyrir krefjandi aðstæður óx fyrirtækið jafnt og þétt og Íslendingar björguðu því í gegnum Covid faraldurinn með góðri aðsókn. Ragnhildur segir sérstakt að fara frá því að líta á hvern einasta viðskiptavin sem sigur, yfir í að þurfa að vísa fólki frá, sem sé erfitt. Þau hjónin bjuggu í Danmörku þegar synir þeirra tveir voru greindir með einhverfu og hún segir þau varla hafa vitað hvað einhverfa væri. Þau tókust á við nýjan raunveruleika og ákváðu að fylgja draumum sínum, líkt og þau hafa hvatt syni sína til að gera. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið mikill og sýning þeirra, sem er blanda af fræðslu og skemmtun, slegið í gegn. Lava Show er nú með sýningar í Vík og tvo sýningarsali í Reykjavík. Hulda Geirsdóttir ræddi við Ragnhildi í Fyrst á fætur og hlusta má í spilaranum hér að ofan.
Hver kúnni var sigur, en nú þarf að vísa fólki frá

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd