Grunur um sjálfsvíg á Hólmsheiði í nótt

Maður sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um sjálfsvíg. Ekki liggur fyrir hver maðurinn var, hve lengi hann var vistaður á Hólmsheiði eða við hvaða aðstæður.Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar, sagðist ekki geta veitt upplýsingar um andlát mannsins að svo stöddu en staðfestir að maður hafi látist.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem maður sviptir sig lífi í fangelsi hér á landi.
Grunur um sjálfsvíg á Hólmsheiði í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd