Reykingar á undanhaldi en tóbaksnotkun mikil meðal evrópskra ungmenna

Sífellt færri reykja daglega en vinsældir nikótínpúða hafa aukist síðustu ár. Þeir eru vinsælli meðal karla en kvenna en fleiri konur en karlar nota rafrettur. Reyklausi dagurinn er í dag. Reykingar eru víða á undanhaldi og sífellt færri reykja daglega en Alþjóðaheilbrigðismálastofnun hefur áhyggjur af tóbaksnotkun ungmenna, sem er einna mest í Evrópu.Tæplega 5% Íslendinga sögðust reykja daglega í tóbakskönnun Gallup í fyrra. Hlutfallið hefur lækkað statt og stöðugt síðasta áratug. Það var 10,2% árið 2016. Ungu fólki sem reykir daglega hefur á sama tíma fækkað úr 8,6% í 2,4% og flestir sem reykja daglega eru á aldrinum 55 til 66 ára, eða 9,2%.Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur að undanförnu vakið sérstaka athygli á síauknum vinsældum tóbaksvara annarra en sígarettna. Hún varaði um miðja
Reykingar á undanhaldi en tóbaksnotkun mikil meðal evrópskra ungmenna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd