Skipulagsráð á Akureyri hefur samþykkt að húsnæði BSO, Bifreiðastöðvar Oddeyrar, verði afhent Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit án endurgjalds. Sex óskuðu eftir að fá húsið eftir að bærinn auglýsti eftir áhugasömum um að flytja og varðveita húsið.Leigubílastöðin var auglýst gefins gegn því að vera sótt, eftir að bærinn hafði betur í langdreginni deilu um lóðina við Hofsbót.Eða með öðrum orðum; húsið yrði afhent án endurgjalds en flutningur væri á ábyrgð viðtakanda.Samkomulag náðist eftir langdregna deilu milli BSO og Akureyrarbæjar um að leigubílastöðin færi brott af lóðinni gegn því að bærinn greiddi þeim leigu um nokkurra mánaða skeið.Bærinn óskaði svo eftir tilboðum frá aðilum sem hefðu áhuga á að varðveita húsið á nýjum stað og bárust sex umsóknir. Dómnefnd á vegum bæjarins, skipuð bæjar