Læknar án landamæra uggandi yfir útbreiðslu ebóla

Aldrei hafa jafnmörg tilfelli ebólasýkinga verið skráð jafn skömmu eftir að faraldri var lýst yfir, að sögn Alan Gonzales, staðgengils rekstrarstjóra mannúðarsamtakanna Lækna án landamæra.Hann segir við BBC að starfsfólk samtakanna í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó líti svo á að viðbrögð heilbrigðisyfirvalda dugi ekki til að halda aftur af útbreiðslunni. Talið er að yfir eitt þúsund hafi sýkst af ebóla og 223 látist á þeim tveimur vikum sem liðnar eru frá því að tilkynnt var um faraldurinn í Kongó.Í nágrannaríkinu Úganda hafa níu tilfelli verið skráð og þar hefur einn dáið af völdum sjúkdómsins. Gonzales segir raunveruleikann vera þann að enginn viti um raunverulegt umfang og alvarleika faraldursins.Nýjar tilkynningar um sýkingar berist daglega og ekki gefist tími til að rannsaka hundruð sýna.
Læknar án landamæra uggandi yfir útbreiðslu ebóla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd