„Svo ef það verður heimsendir þá er þetta bara fínt vopn,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir um nýjustu bók sína, FNÆS, sem er safn nærri 400 myndasagna efti hana frá síðustu fimm árum. FNÆS er stór og vegleg bók, 320 síður af fnæsi yfir öllu frá hversdeginum til heimsmálanna. Stundum er fnæst af gleði, stundum af reiði og stundum af uppgjöf.Myndasögurnar í bókinni spegla sameiginlega reynslu samfélags. Hún er oft flókin en getur einnig verið fyndin. Ekkert er Lóu Hlín óviðkomandi og hún fjallar um ófullkomleika manneskjunnar, uppeldi, heim á vonarvöl, hópefli, menningararfinn, rútínu, sérvisku og jólin.Lóa Hlín fnæsti með Guðrúnu Dís Emilsdóttur og Atla Fannari Bjarkasyni í Morgunútvarpinu á Rás 2.Í myndasögum sínum gerir Lóa Hlín gjarnan grín að Íslendingum enda er af nógu að taka. „Það fer