Hiti að 15 stigum í dag

Hæð við Jan Mayen og kraftlítið lægðasvæði suður í hafi valda austlægri eða breytilegri átt á landinu í dag. Víða má búast við golu eða kalda og stöku skúrum á víð og dreif.Hiti verður 7 til 15 stig en svalara á Suðaustur- og Austurlandi. Þar má búast við súld eða dálítilli rigningu.Á morgun verður hæg breytileg átt og á Austurlandi verður áfram svöl þokusúld. Líkur eru á stöku skúrum í öðrum landshlutum og sæmilega mildu veðri en þó geta þokubakkar látið á sér kræla við ströndina.RÚV / Ragnar Visage
Hiti að 15 stigum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd