Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 skammt frá Hellisheiðarvirkjun

Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 varð laust fyrir klukkan sjö í morgun, um þrjá kílómetra austan við Húsmúla, skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Skjálftinn átti upptök um 3 kílómetra austan Húsmúla skammt frá Hellisheiðarvirkjun.Carbfix / Árni SæbergÁ annan tug minni eftirskjálfta hafa mælst í kjölfarið að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Þarna hafa mælst um fimmtíu mjög smáir skjálftar síðustu vikuna, sem Andrea segir varla hægt að tala um sem hrinu. Hún segir langlíklegast að skjálftarnir tengist jarðskorpuhreyfingum. Ekki hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 skammt frá Hellisheiðarvirkjun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd