Ellefu manns var stungið bak við lás og slá í gærkvöld og nótt.Þ / RÚVTveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu án þess að tíundað sé frekar hvað hafi átt sér stað.Þar voru jafnframt tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt, sá þriðji fyrir brot á áfengislögum og stjórnandi rafhlaupahjóls var tekinn eftir að hafa ekið því á bíl. Ökumaður var handtekinn fyrir að keyra ölvaður á byggingu í Hafnarfirði og auk hans voru nokkrir handteknir fyrir ölvunarakstur víðs vegar um borgina. Ellefu gistu fangageymslur í morgun.