Pétur Guðmannsson réttarlæknir segir mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk og lögregla kunni að meta áverka sem geti myndast við kyrkingu í heimilisofbeldismálum. Eðli áverka geti sagt til um þrýsting sem var beitt og jafnvel tímalengd kyrkingarinnar. Manneskja missir meðvitund eftir aðeins sex til tíu sekúndur en kyrking geti verið óafturkræfanleg eftir um þrjár mínútur.