Hundruð mótmæltu um helgina forsetaframboði hægrikonunnar Keiko Fujimori í perúsku höfuðborginni Líma og fleiri borgum. Rúm vika er í að íbúar Perú velji milli Fujimori og vinstrimannsins Pedro Sanchez í síðari umferð kosninganna. Mótmælendur báru borða og skilti með áletrunum á borð við „Út með Keiko“ og „Aldrei aftur Fujimori“.Hún er dóttir Albertos Fujimori sem var Perúforseti frá 1990 til 2000 og stjórnaði landinu með harðri hendi og mótmælendur tjáðu AFP-fréttaveitunni ótta sinn um að sagan endurtæki sig næði hún kjöri.Fujimori væri hættuleg og sigur hennar jafnaðist á við kosningasvik. Alberto Fujimori var loks dæmdur til 25 ára fangavistar fyrir glæpi gegn mannkyni tengdum herför hans gegn skæruliðahreyfingunum Tupac Amuro og Skínandi stíg.Alls gáfu 35 kost á sér í fyrri umferð fors