Ísraelsher réðst á sveitir Hezbollah handan Litani-fljótsins

Ísraelsher hefur ruðst enn lengra inn í Líbanon sunnanvert og hefur farið norður yfir Litani-fljótið um þrjátíu kílómetra norðan landamæra ríkjanna. Samkvæmt ályktun Sameinuðu þjóðanna bar Hezbollah-hreyfingunni að draga sveitir sínar norður fyrir fljótið svo tæknilega væru þær ekki við landamæri Ísraels. Í tilkynningu Ísraelshers á Telegram segir að stórfelldum loftárásum hafi fyrst verið beint að liðsmönnum Hezbollah auk þess sem stórskotalið og skriðdrekasveitir hafi lagt til atlögu. Einn ísraelskur hermaður er sagður fallinn í átökunum. Herinn kveðst reiðubúinn að ráðast enn lengra inn í Líbanon þyki honum þörf á. Ísraelsher hefur vikum saman gert árásir á Hezbollah þótt vopnahlé sé í gildi milli Ísraels og Líbanon. Leiðtogar Hezbollah hafa lýst sig andvíga vopnahlénu, sem var framleng
Ísraelsher réðst á sveitir Hezbollah handan Litani-fljótsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd