Vígahnöttur sprakk með mjög háværum hvelli á þriðja tímanum aðfaranótt laugardags að staðartíma í Bandaríkjunum, sem fór ekki fram hjá íbúum Massachusetts og New Hampshire í norðausturhluta landsins.Íbúar í ríkjunum tveimur segja sér hafa brugðið verulega enda var krafturinn svo mikill að hús nötruðu við sprenginguna.Afl sprengingarinnar var á borð við að 300 tonn af TNT hefðu leysts úr læðingi samtímis, að sögn Jennifer Dooren, fjölmiðlafulltrúa bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA. Hnötturinn var á 120 þúsund kílómetra hraða á klukkustund þegar hann tættist í sundur í um 64 kílómetra hæð.Lofsteinninn á sér náttúrulegan uppruna en var hvorki hluti af virkri lofsteinadrífu að sögn Dooreen né heldur gervihnöttur eða annað geimrusl að koma inn fyrir lofthjúp jarðar. Árið 2013 sprakk stór