Edmundo Gonzalez Urrutia, sem var forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar árið 2024, segir að efna beri til forsetakosninga í Venesúela svo fljótt sem verða má. Bandaríkin og fleiri ríki hafa lýst Gonzalez réttkjörinn forseta landsins.Gonzalez, sem dvelur í útlegð á Spáni, lýsti jafnframt yfir stuðningi við stjórnarandstöðuleiðtogann og Nóbelsverðlaunahafann Mariu Corinu Machado.Hún sjálf hefur krafist kosninga, kallað eftir viðræðum við núverandi stjórnvöld og sagst gefa kost á sér til embættisins. Gonzalez tekur undir orð Machado og segir markmiðið vera frelsi og lýðræði í Venesúela.Yfirlýsingar þeirra beggja gætu sett aukinn þrýsting á stjórnvöld og Bandaríkin að hlýða háværu ákalli um stjórnarskipti eftir að Bandaríkjaher steypti Nicolas Maduro forseta af stóli í janúar og varaforseti