Herinn talinn þurfa 180 þúsund manna varalið komi til styrjaldar

Ef kemur til styrjaldarátaka telur danski herinn og varnarmálaráðuneytið nauðsynlegt að hafa minnst 180 þúsund varaliðsmenn til taks. Þeim væri meðal annars ætlað að berjast við hlið hermanna Atlantshafsbandalagsins.Þetta er mat og vilji Michael Hyldgaard, æðsta yfirmanns danska hersins, samkvæmt upplýsingum í leyniskjölum frá varnarmálaráðuneytinu sem DR kveðst hafa undir höndum. Þar er dregin upp mynd af uppbyggingu og þjálfun heraflans sem kostar milljarða króna.Varnarmálaráðuneytið lítur svo á að brýnt sé að geta kallað til vel þjálfað varalið svo bregðast megi við hættu- og stríðsástandi, segir í skjölunum. Varaliðsmennirnir mega vera allt að 65 ára gamlir og verða að hafa lokið nýju ellefu mánaða námskeiði í herþjálfun.Herinn vill geta kallað reynda hermenn út einu sinni í tíu til fi
Herinn talinn þurfa 180 þúsund manna varalið komi til styrjaldar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd