Heimsmet var slegið á Írlandi í gær þegar fjöldi fólks með sama ættarnafn kom saman í smábæ á suðvestanverðu Írlandi. Næstum tvö þúsund manns með ættarnöfnin O'Sullivan eða Sullivan ferðuðust til Cork-sýslu hvaðanæva úr Írlandi og heiminum öllum til að taka þátt í fjölmennustu samkomu fólks með sama eftirnafn í sögunni. Fulltrúar frá Heimsmetabók Guinness staðfestu metið og óskuðu 1.848 Sullivönum innilega til hamingju á samkomunni sem haldin var í þeim snotra bæ Castletownbere. Skipuleggjandinn Jim O'Sullivan, sem býr í bænum, kvaðst hafa óttast að rigning snemma dags gæti sett strik í reikninginn. Þannig fór þó ekki og með þessu skákuðu Sullivanarnir löndum sínum, Gallagherunum, sem slógu heimsmetið árið 2007 þegar 1.488 með það ættarnafn hittust í Donegal-sýslu á Írlandi.Nöfnin Sullivan