Á þriðja hundrað handtekin vegna óspekta eftir sigur PSG

Parísarlögreglan hefur handtekið á þriðja hundrað manns eftir að óspektir brutust út í kjölfar sigurs Paris Saint Germain á Arsenal í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Næstum hundrað til viðbótar voru handteknir annars staðar í Frakklandi. Tugir þúsunda lögreglumanna um gervallt landið voru kallaðir út og reiðubúnir að bregðast við því versta í ljósi þeirra óeirða sem urðu eftir sigur PSG á síðasta ári. Skemmdir voru unnar á minnst sex farartækjum í París, nokkrum verslunum og lögreglumaður meiddist í átökum að sögn lögregluyfirvalda. Sporvagna- og strætisvagnaferðum var aflýst víða í París og nokkrum jarðlestarstöðvum lokað til að minnka líkurnar á ólátum. Úrslitaleikurinn var spilaður í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Staðan var jöfn, 1 : 1, eftir venjulegan leiktíma og fram
Á þriðja hundrað handtekin vegna óspekta eftir sigur PSG

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd