„Umbrotin við Grindavík sýna hvernig gliðnun, misgengi og kvika vinna saman á flekamótum Íslands.“ Þetta eru inngangsorð kynningar á nýrri rannsókn alþjóðlegs hóps jarðvísindamanna, sem birtist í bandaríska vísindatímaritinu Geophysical Research Letters í vikunni.Rannsóknin er byggð á umfangsmiklum mælingum á umbrotunum á Reykjanesskaga frá 2021 til 2025. Ein meginniðurstaðan er að jarðskorpan á umbrotasvæðinu gliðnaði um næstum fjóra metra á þessum örfáu árum, þar af um allt að tvo og hálfan metra í einum rykk, daginn sem Grindavík var rýmd.Þeir Gregory De Pascale dósent og prófessorarnir Halldór Geirsson og Þorvaldur Þórðarson voru fulltrúar Háskóla Íslands í þessari miklu rannsókn. Þorvaldur, sem er prófessor í eldfjallafræði og bergfræði, fór yfir helstu niðurstöður þessarar tímamótara